Psalms 118

1Þakkið Drottni, því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu. 2Það mæli Ísrael: ,,Því að miskunn hans varir að eilífu!`` 3Það mæli Arons ætt: ,,Því að miskunn hans varir að eilífu!`` 4Það mæli þeir sem óttast Drottin: ,,Því að miskunn hans varir að eilífu!`` 5Í þrengingunni ákallaði ég Drottin, hann bænheyrði mig og rýmkaði um mig. 6Drottinn er með mér, ég óttast eigi, hvað geta menn gjört mér? 7Drottinn er með mér með hjálp sína, og ég mun fá að horfa á ófarir hatursmanna minna. 8Betra er að leita hælis hjá Drottni en að treysta mönnum, 9betra er að leita hælis hjá Drottni en að treysta tignarmönnum. 10Allar þjóðir umkringdu mig, en í nafni Drottins hefi ég sigrast á þeim. 11Þær umkringdu mig á alla vegu, en í nafni Drottins hefi ég sigrast á þeim. 12Þær umkringdu mig eins og býflugur vax, brunnu sem eldur í þyrnum, en í nafni Drottins hefi ég sigrast á þeim. 13Mér var hrundið, til þess að ég skyldi falla, en Drottinn veitti mér lið. 14Drottinn er styrkur minn og lofsöngur, og hann varð mér til hjálpræðis. 15Fagnaðar- og siguróp kveður við í tjöldum réttlátra: Hægri hönd Drottins vinnur stórvirki, 16hægri hönd Drottins upphefur, hægri hönd Drottins vinnur stórvirki. 17Ég mun eigi deyja, heldur lifa og kunngjöra verk Drottins. 18Drottinn hefir hirt mig harðlega, en eigi ofurselt mig dauðanum. 19Ljúkið upp fyrir mér hliðum réttlætisins, að ég megi fara inn um þau og lofa Drottin. 20Þetta er hlið Drottins, réttlátir menn fara inn um það. 21Ég lofa þig, af því að þú bænheyrðir mig og ert orðinn mér hjálpræði. 22Steinninn sem smiðirnir höfnuðu er orðinn að hyrningarsteini. 23Að tilhlutun Drottins er þetta orðið, það er dásamlegt í augum vorum. 24Þetta er dagurinn sem Drottinn hefir gjört, fögnum, verum glaðir á honum. 25Drottinn, hjálpa þú, Drottinn, gef þú gengi! 26Blessaður sé sá sem kemur í nafni Drottins, frá húsi Drottins blessum vér yður. 27Drottinn er Guð, hann lætur oss skína ljós. Tengið saman dansraðirnar með laufgreinum, allt inn að altarishornunum. 28Þú ert Guð minn, og ég þakka þér, Guð minn, ég vegsama þig. 29Þakkið Drottni, því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu.
Copyright information for Icelandic